Culkin forðast að fara út um jólin

Macaulay Culkin sló í gegn í Home Alone.
Macaulay Culkin sló í gegn í Home Alone.

Home Alone-stjarnan Macaulay Culkin mætti í spjallþátt Ellenar DeGeneres í gær, mánudag, þar sem hann greindi meðal annars frá því að hann forðaðist að fara út um jólin vegna myndanna. 

„Það er Macaulay árstíðin. Ég reyni að fara alltaf minna og minna út á þessum árstíma,“ sagði Culkin. Hann sest til dæmis ekki niður þegar myndirnar eru sýndar í sjónvarpinu um jólin. 

Það fer ekki framhjá neinum sem sér hinn 37 ára Culkin að þar er á ferð strákurinn Home Alone enda hefur Culkin lítið breyst síðan árið 1990. Hann neitar þó að setja upp hinn fræga Home Alone-svip þegar hann er beðinn um það. 

Culkin tók sér frí frá leiklistinni þegar hann var unglingur eftir nokkur ár í bransanum. Hann varð þó nógu ríkur á þessum nokkrum árum til þess að geta sleppt því að vinna allt sitt líf enda lýsir hann því að hann takist á við verkefni eins og áhugamál. 



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes