Brasilíska knattspyrnuhetjan Ronaldinho er sagður ætla að kvænast í sumar. Ekki er um að ræða eina heppna konu heldur tvær, þær Beatriz og Priscillu, en Ronaldinho er sagður búa með þeim báðum í stóru húsi í Rio de Janeiro.
The Sun greinir frá því að Ronaldinho hafi byrjað að hitta Beatriz árið 2016 en þá hafi samband hans við Priscillu þegar staðið yfir í nokkur ár. Er knattspyrnumaðurinn fyrrverandi sagður halda þeim uppi og láti þær hafa 1.500 pund í vasapening á mánuði sem eru rúmlega 200 þúsund íslenskar krónur.
Á vef The Sun er það heft eftir brasilískum greinahöfundi, Leo Dias, að Ronaldinho hafi beðið um hönd þeirra í janúar á síðasta ári og gefið þeim trúlofunarhring. Heldur hann því fram að brúðkaupið fari fram í Brasilíu í sumar. Systir knattspyrnuhetjunnar er sögð vera á móti tvíkvæni bróður síns og ætlar ekki að mæta í brúðkaupið.