Chloé Moretz búin að jafna sig á Beckham?

Brooklyn Beckham og Chloe Grace Moretz eru ekki lengur saman.
Brooklyn Beckham og Chloe Grace Moretz eru ekki lengur saman. AFP

Leikkonan Chloé Grace Moretz virðist vera búin að jafna sig á Brooklyn Beckham ef marka má sögusagnir. Fyrr í vikunni sást hún á stefnumóti með leikaranum Dylan O'Brien.

Moretz og Brooklyn hafa átt í slitróttu sambandi síðastliðin ár og hættu síðast saman í byrjun árs. Hvorugt þeirra hefur verið í sambandi síðan en Brooklyn sást með playboy-fyrirsætuna Lexi Woods upp á arminn í apríl. 

Dylan O'Brien er hvað best þekktur fyrir túlkun sína á Thomas í þríleiknum The Maze Runner. Fréttirnar um stefnumót þeirra Moretz eru áhugaverðar fyrir þær sakir að árið 2011 sagði hann að hann væri hrifinn af henni, eftir að hafa séð hana í kvikmyndinni Kick-Ass. Hann dró þó athugasemd sína til baka eftir að hann „gúgglaði“ og komst að því að hún var aðeins 14 ára. 

Núna er hún hins vegar 21 árs og hann 26 ára og því enginn aldursmunur eða Beckham að stoppa þau. 

Chloé Grace Moretz og Dylan O'Brien.
Chloé Grace Moretz og Dylan O'Brien. skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes