Rapparinn Travis Scott er greinilega með hjarta úr gulli og vel stæða bankabók, en í gær lofaði hann að gefa aðdáendum sínum 100 þúsund bandaríkjadali, eða um 11 milljónir íslenskra króna. Það eina sem aðdáendur hans þurfa að gera er að tísta textabroti úr lagi hans Astro og láta númerið sitt á Cash fylgja með. Cash er smáforrit sambærilegt forritunum Kass og Aur sem íslendingar þekkja.
SO I KNOW ITS HARD FOR THE KIDS
— TRAVIS SCOTT (@trvisXX) August 14, 2018
SO I DECIDED TO UNLOAD MY BANK ACCOUNT ON U GUYS. IM BUSTING DOWN $100,000 AND GIVING AWAY TO ANY FANS THAT CAN TWEET ME THERE CASH TAG WITH LYRICS FROM ASTRO. GANG !! pic.twitter.com/7o3KlxnTm2
Nokkrir aðdáendur hafa nú þegar fengið pening frá rapparanum og þakka honum kærlega fyrir.
Love ur life kid pic.twitter.com/fT2nHDzT7u
— TRAVIS SCOTT (@trvisXX) August 15, 2018
ONLY THE REAL RAGERS WOULD KNOW!!! ALWAYS HAVE US IN MIND AND FOR THAT. I THANK YOU MY BROTHER @trvisXX pic.twitter.com/vBK5G0PLSR
— Luis 🎢 (@sadghoulishboy) August 15, 2018
Travis Scott er kærasti og barnsfaðir milljarðamæringsins tilvonandi Kylie Jenner. Kylie varð 21 árs á dögunum og sparaði Scott ekki þegar hann valdi afmælisgjöf handa henni. Afmælisgjöfin var hvítur Rolls Royce-jeppi. Hann fyllti einnig garðinn fyrir utan hús hennar með rauðum rósum.
woke up to a little fairytale 💕 thank you baby @travisscott
A post shared by Kylie (@kyliejenner) on Aug 10, 2018 at 6:42pm PDT