Bandaríski rapparinn Mac Miller fannst látinn á heimili sínu í San Fernando-dal í Kaliforníuríki fyrr í dag, samkvæmt fregnum bandarískra fjölmiðla. Talið er líklegt að rapparinn hafi látist vegna ofskömmtunar eiturlyfja, en hann var 26 ára gamall.
Fjölmiðillinn Vice fjallar um andlát rapparans og segir hann hafa átt erfitt ár að baki. Í maí síðastliðnum var hann ákærður fyrir ölvunarakstur í Los Angeles, en skömmu áður höfðu hann og söngkonan Ariana Grande slitið sambandi sínu.
Fyrsta plata Millers, Blue Slide Park, kom út árið 2011 og skaust frumraunin beint á topp bandaríska Billboard 200-listans og gerði Miller að stórstjörnu.
Síðan gaf Miller út fjórar plötur til viðbótar og sú nýjasta, Swimming, kom út fyrr í sumar. Nýjasta færsla rapparans á Twitter var sett inn fyrir um 20 klukkustundum og þar sagðist hann hlakka mikið til þess að fylgja nýjustu plötu sinni eftir með tónleikaferðalagi um Bandaríkin, sem átti að hefjast 27. október.
Go get tickets for tour.
— Mac (@MacMiller) September 7, 2018
Thundercat
J.I.D.
I’m bringing a band.
The show is going to be special every night.
I wish it started tomorrow.
It starts October 27th.https://t.co/RGYZC5DTza
Fjölmargir úr tónlistarheiminum hafa þegar brugðist við fregnum af ótímabæru andláti Millers.
So sad u gone home young Mac I had to post this to smile and think about the good Time we had on the set of this movie man god bless ya family. Pittsburg we lost a real one today 🌟 @macmiller 🙏🏾 pic.twitter.com/AZkqUlhm1V
— Snoop Dogg (@SnoopDogg) September 7, 2018
I’m so saddened to hear about @MacMiller☹️😩 such a kind spirit Sending prayers for strength for his family & friends & fans during this difficult time🙏🏾
— Missy Elliott (@MissyElliott) September 7, 2018
Rest In Peace to the great soul Mac Miller
— J. Cole (@JColeNC) September 7, 2018
I dont know what to say Mac Miller took me on my second tour ever. But beyond helping me launch my career he was one of the sweetest guys I ever knew. Great man. I loved him for real. Im completely broken. God bless him.
— Chance The Rapper (@chancetherapper) September 7, 2018