Soon-Yi Previn opnaði sig í viðtali Vulture um móður sína, Miu Farrow, og samband sitt við eiginmann sinn, kvikmyndaleikstjórann Woody Allen. Í viðtalinu segist hún eiga erfitt með að rifja upp ánægjulega minningu um móður sína og harmar hvernig Farrow hefur nýtt MeToo-byltinguna til þess að koma óorði á Allen.
Previn var ættleidd frá Suður-Kóreu af þeim Farrow og tónlistarmanninum André Previn. Eftir hjónabandi Farrow og Previn lauk hóf Farrow um það bil tíu ára langt ástarsamband við Allen. Previn var þó 21 árs þegar hún hóf ástarsamband með stjúpföður sínum en Farrow komst að því þegar hún fann nektarmyndir í eigu Allen af dóttur sinni.
Í viðtalinu lýsir Previn andlegu og líkamlegu ofbeldi sem Farrow beitti hana. Hún segir að Farrow hafi kennt henni um alls kyns hluti sem áttu sér stað á heimilinu og hafi hótað að senda hana á geðveikrahæli. Previn átti í erfiðleikum í skóla og segir hún Farrow hafi tekið því illa. Hún átti erfitt með stafsetningu og segir að móðir hennar hafi meðal annars skrifað orð á handleggi hennar.
„Hún hvolfdi mér líka, hélt um fætur mína, til þess að fá blóðið til þess að renna í höfuðið á mér. Af því hún hélt, eða las það, guð veit hvar hún kom upp með þessa hugdettu – að blóð sem rynni í höfuðið á mér myndi gera mig gáfaðri eða eitthvað,“ sagði Previn í viðtalinu.
Hún segir að Farrow hafi einnig slegið hana og rassskellt með hárbursta, kallað hana heimska og hálfvitalega. Samkvæmt Previn missti Farrow það stundum algjörlega eins og þegar hún kastaði postulínskanínu sem móðir hennar hefði gefið Previn í hana.
Previn segist hafa hatað Allen fyrst þegar hún sá hann en þá var hún tíu ára. Hún hataði hann vegna þess að hún skildi ekki hvernig einhver manneskja gat verið með svo illgjarni og vondri konu og móður hennar. Að lokum varð sambandið gott þar sem það var algjör andstæða við það sem hún átti við móður sína. „Mia var aldrei góð við mig, aldrei kurteis,“ segir Previn í viðtalinu.