Fertug og fagnaði ekki eins og stjarna

Katie Holmes og Jamie Foxx fögnuðu stórafmæli Foxx.
Katie Holmes og Jamie Foxx fögnuðu stórafmæli Foxx. mbl.is/AFP

Leikkonan Katie Holmes fagnaði fertugsafmæli sínu á þriðjudaginn á mjög einfaldan hátt. Hún fór út að borða í New York með kærasta sínum, leikaranum Jamie Foxx, og móður sinni. 

People greinir frá því að Holmes og Foxx hafi borðað afmæliskvöldverð á veitingastaðnum Serendipity í New York. Er Holmes meðal annars hafa fengið sér jarðarberjaísrétt en Foxx og móðir hennar fengið sér heitt súkkulaði. 

Holmes og Foxx voru ekki klædd eins og mikið lægi við og fengu sparifötin að hanga heima. Bæði voru þau í gallabuxum og Holmes meira að segja í prjónaðri peysu. 

Foxx og Holmes sáust fyrst saman árið 2013 ári eftir að Holmes skildi við fyrrverandi eiginmann sinn, Tom Cruise. Í fyrra voru þau mynduð saman á strönd og fóru varlega eftir það en á þessu ári hafa þau sést mikið saman þó svo þau hafi enn ekki talað opinberlega um samband sitt. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir