Samantha Markle hefur sent hálfsystur sinni Megan jólakort þar sem hún hvetur hana til að binda enda á ósætti hertogaynjunnar af Sussex við föður þeirra.
Greint er frá því í breskum fjölmiðlum að Samantha biðji systur sína um að gleðja föður þeirra síðustu árin í lífi hans með því að hafa samband við hann.
Faðir Samönthu og Meghan, Thomas Markle, hefur reynt að ná í dóttur sína í gegnum fjölmiðla undafarið en hann segist ekki hafa talað við hana síðan fyrir brúðkaup hennar og Harry prins í maí.
„Hátíðarnar eru tími fjölskyldna og hafa tilfinningalegt gildi. Pabbi hefur reynt að hafa samband við þig og er mjög leiður vegna þess að þú forðast hann,“ er meðal þess sem kemur fram í kortinu sem Samantha skrifaði systur sinni.
„Lífið er stutt og þú veist að pabbi er yndislegur,“ skrifaði Samantha og bætti við að það myndi gleðja föður þeirra ef Meghan myndi hafa samband við hann.