Madonna er engin venjuleg poppstjarna. Það sýnir nýjasta útspil hennar á Instagram þar sem hún sést reykja, drekka kaffi og Martini á meðan verið er að gera hana til.
Að sjálfsögðu er popptónlistargoðið að eldast eins og aðrir en hún gerir það svo sannarlega eins og villtri tónlistarstjörnu sæmir.
Í það minnsta virðast fáir þora að vaða í poppdrottninguna gömlu, því flestir skrifa orð eins og drottning, geggjað og fleira í þeim dúrnum. Aðrar stjörnur fá minna svigrúm en Madonna sem kallar ekki allt ömmu sína. Í það minnsta ekki sig sjálfa.
View this post on InstagramMartini Shot 🍸 @isamayaffrench @andylecompte
A post shared by Madonna (@madonna) on Mar 14, 2019 at 10:31am PDT