Leikaraparið Rooney Mara og Joaquin Phoenix eru trúlofuð að því fram kemur á vef Us Weekly. Mara sást með trúlofunarhring í byrjun sumars en nú hafa fréttirnar verið staðfestar. Mara er 34 ára og ellefu árum yngri en Phoenix
Stjörnurnar kynntust þegar þau léku saman í myndinni Her árið 2013. Þau léku síðan aftur í myndinni Mary Magdelene árið 2016 en þar lék leikkonan Maríu Magdalenu en Phoenix Jesú sjálfan. Þau eru sögð hafa byrjað að hittast í kjölfarið og mættu fyrst saman á rauða dregilinn á kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrir tveimur árum.
Heimildarmaður sagði þau Phoenix og Mara ekki fara mikið út. Þau væru mest megnis ein heima í sínum eigin heimi. Systir Mara, leikkonan Kate Mara, greindi þó frá því í fyrra að hún reyndi að hitta systur sína sem oftast. Svo gera má ráð fyrir að Rooney Mara og Phoenix hitti oft Kate Mara og eiginmann hennar, Billy Elliot-leikarann Jamie Bell.