Leigusali kemur upp um tvöfalt líf samfélagsmiðlastjörnu

Myndbandið sýndi íbúðina vera þakta rusli, mygluðum mat og hundaskít.
Myndbandið sýndi íbúðina vera þakta rusli, mygluðum mat og hundaskít. Skjáskot/Pear

Leigusali kínversks áhrifavalds kom upp um tvöfalt líferni samfélagsmiðlastjörnunnar með því að sýna hvernig sóðaskapurinn sem hún bjó við var í hrópandi mótsögn við glansmyndina sem hún birti myndir af á netinu.

BBC segir myndbandsupptöku af íbúð samfélagsmiðlastjörnunnar Lisu Li, bloggara sem er með 1,1 milljón fylgjenda, hafa fengið mikla deilingu. Þar sást íbúðin vera þakin rusli, mygluðum mat og hundaskít.

Li hefur síðan beðist afsökunar, en hún er þekkt í Kína líkt og fjölmargir aðrir áhrifavaldar fyrir glansmyndir af ferðalögum, partíum og fínum veitingastöðum.

Myndasýning leigusalans á íbúð hennar hefur þó gert hana fræga af  öðrum sökum.

Segir BBC leigusalann hafa gripið til þess ráðs að bjóða netmiðli í heimsókn í íbúð Li eftir að hún hafði ítrekað hunsað símtöl frá henni.

Sagði leigusalinn, sem miðillinn kallar fröken Chen, jafnvel ræstitækna hafa neitað að þrífa íbúðina, auk þess sem Li skuldaði þúsundir yuan í orkureikninga. Sagðist Chen því ekki eiga  annarra kosta völ en að setja sig í samband við lögreglu vegna skemmda á íbúðinni og vegna ógreiddu reikninganna.

„Þetta er áhrifavaldur á netinu með milljón fylgjendur,“ sagði Chen við myndbandsmiðilinn Pear og sýndi því næst Weibo-síðu Li og kvað hrópandi mótsögn vera á myndunum af „fallegu konunni“ sem sæist á netinu og svo „viðbjóðslegu“ konunni sem skildi íbúð sína eftir í rúst.

Eftir að milljónir höfðu séð myndbandið úr íbúð Li setti hún sig í samband við leigusalann og baðst afsökunar. „Ábyrgðin vegna þessa atviks liggur alfarið hjá mér,“ sagði Li og mynd var birt af þeim takast í hendur.

Sagði hún því næst sjúkrahúsdvöl og miklar annir, auk viðskiptaferðar hafa valdið því að þær hefðu farist á mis.

„Ég fer í það að þrífa núna ...ég mun klára að þrífa þetta í nótt,“ sagði hún í samtali við The Paper.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes