Steinar Fjeldsted hefur verið ráðinn sem verkefnastjóri tónlistarhátíðarinnar Músíktilrauna, ásamt Unni Sesselíu Ólafsdóttur. Steinar er meðal annars þekktur af vettvangi tónlistar sem einn af stofnfélögum hljómsveitarinnar Quarashi. Þá rekur hann tónlistarmiðilinn albumm.is.
Músíktilraunir hafa verið starfræktar frá árinu 1982, en þar gefst ungum og ferskum hljómsveitum tækifæri til að láta ljós sitt skína. Hátíðin er rekin af Hinu húsinu.
Undankeppnin fer í ár fram dagana 21.-24. mars, en úrslitakvöldið er svo 28. mars.