Leikarinn Harrison Ford verður 78 ára ára í sumar og er enn að. Hann leikur nú í myndinni Call of Wild og fer meira að segja úr skyrtunni eins og hvert annað unglamb sem hnyklar vöðvana. Í viðtali við ET var hann spurður hvernig það hafi verið að vera hjartaknúsari í Hollywood í fimm áratugi.
„Ég hef verið leikari. Ég hef verið heppinn að hafa átt frábæran feril sem leikari,“ útskýrði Ford.
Ford eignar sér ekki heiðurinn af farsælum ferli í Hollywood heldur þakkar fyrir að hafa unnið með hæfileikaríku fólki. Segist hann hafa verið heppinn að hafa fengið tækifæri til að vinna með leikstjórum á borð við George Lucas og Steven Spielberg.
Nýjasta mynd Ford er ekki sú síðasta þrátt fyrir að það styttist í áttræðisafmælið. Ford segist vera spenntur fyrir fimmtu Indiana Jones-myndinni sem er í bígerð.
„Ég er spenntur fyrir að leika persónuna aftur. Ég elska að gera þessar myndir,“ sagði Ford en fyrsta myndin kom út árið 1981. „Þær eru frábær skemmtun.“