Leikarinn Mark Wahlberg deildi með aðdáendum sínum niðurstöður ofnæmisprófs. Í ljós kom að hann sýndi ofnæmisviðbrögð við mjög miklu eða „nánast öllu“ eins og hann orðaði það sjálfur á Instagram.
„Það tók mig aðeins 49 ár til þess að komast að því að ég er með ofnæmi fyrir nánast öllu,“ sagði Wahlberg.
Wahlberg sló upphaflega í gegn sem tónlistarmaðurinn Marky Mark en sneri sér svo að kvikmyndaleik við góðan orðstýr. Hann hefur leikið í myndum á borð við Boogie Nights, Transformers, Contraband, The Departed o.fl.
View this post on InstagramIt only took me 49 years to realize I’m allergic to almost everything. 🤢
A post shared by Mark Wahlberg (@markwahlberg) on Jun 29, 2020 at 4:25pm PDT