Leikkonan Rachel Bilson og leikarinn Bill Hader halda nú hvort í sína áttina eftir rúmlega hálfs árs samband.
Billson og Hader sáust fyrst saman í desember í fyrra og opinberuðu samband sitt þegar þau mættu á Golden Globe-verðlaunahátíðina saman þann 4. janúar síðastliðinn.
Bilson var lengi með leikaranum Hayden Christensen og á eina dóttur með honum. Þau hættu saman árið 2017. Hader var hins vegar kvæntur leikstjóranum Maggie Carey og á með henni þrjár dætur. Þau tilkynntu einnig um skilnað sinn fyrir tveimur árum. Hader og Bilson léku saman í mynd Carey árið 2013, The To Do List.
https://www.mbl.is/folk/frettir/2019/12/23/fundu_astina_fyrir_jolin/