Árið hjá söngkonunni Emiliönu Torrini byrjaði ekki betur en svo að hún sleit liðband í handleggnum í brúðkaupi. Emilana birti mynd af sér á sjúkrahúsi með handlegginn í gifsi og sagði að þetta væru afleiðingarnar af því að reyna að breikdansa í brúðkaupi.
„Þetta færðu þegar þú breikdansar í brúðkaupi ... sleit liðbönd og er núna með skrúfu í hendinni sem mun búa þar til frambúðar,“ skrifaði Emiliana Torrini í færslu sinni á Facebook.
That is what you get for brakedancing at a wedding.... tore a ligament now have a screw in my hand that will live there permanently 🙄
Posted by Emiliana Torrini on Wednesday, 6 January 2021