Hressandi að sjá hvar þolmörkin liggja

Maraþon. Dagur Kári Pétursson líkir því við maraþonhlaup að leikstýra …
Maraþon. Dagur Kári Pétursson líkir því við maraþonhlaup að leikstýra átta sjónvarpsþáttum líkt og hann gerði fyrir Utmark. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Norska þáttaröðin Utmark hefur hlotið prýðilegar viðtökur en hún er framleidd af Norðurlanda-armi HBO, HBO Nordic, og leikstýrt af Degi Kára Péturssyni. Þættirnir eru átta talsins og segir Dagur Kári um tvö ár af lífi sínu hafa farið í þættina enda mikið verkefni í undirbúningi, framkvæmd og eftirfylgni.

Sýningar á þáttunum hófust í apríl en tökum lauk í fyrra, skömmu áður en Covid-19 farsóttin skall á heimsbyggðinni. Spurður að því hvort farsóttin hafi haft einhver áhrif á þættina segir Dagur Kári að þau hafi verið heldur lítil. Eftirvinnslunni hafi seinkað örlítið og það sé allt og sumt.

En hvað með hans störf, hefur Covid-19 haft einhver áhrif á þau? „Þetta hefur komið misilla við fólk en fyrir mig var þetta ákveðin himnasending því ég var búinn að vera í ár úti í Noregi í tökum og svo átti ég meira eða minna að vera áfram þar í eftirvinnslunni, klippi og svoleiðis en út af Covid er ég kyrrsettur hér. Þannig að fyrir mig persónulega kom þetta sér mjög vel,“ segir Dagur Kári.

Skarpari skil

Dagur Kári hefur áður leikstýrt sjónvarpsþáttum, leikstýrði þremur þáttum af sex í Norskov, danskri þáttaröð, en Utmark er fyrsta serían sem hann leikstýrir í heild. Hann er spurður að því hvernig þetta verkefni hafi verið fyrir hann, að leikstýra fyrir HBO Nordic eftir handriti Danans Kim Fupz Åkeson. Var það léttir í samanburði við kvikmyndirnar?

Úr einum þátta Utmark sem Dagur Kári segir blöndu af …
Úr einum þátta Utmark sem Dagur Kári segir blöndu af gamniog dramatík. Hér má sjá leikkonuna Marie Blokhus í hlutverki Siri.

„Já, að mörgu leyti. Þegar maður leikstýrir kvikmyndum sem maður hefur skrifað sjálfur er þetta kannski saga sem hefur verið að gerjast innra með manni í sex, tíu ár og svo er allt í einu komið að því að gera þetta og þá hefur maður einhverja 30 daga til að skjóta eitthvað sem maður hefur verið að hugsa um lengi. Þannig að jú, að því leyti er þetta meiri léttleiki og skarpari skil milli handritshöfundarins og leikstjórans og maður undirgengst þessar spilareglur. Það er ákveðinn tími og þetta handrit og maður gerir sitt allra besta.

Að umfangi er þetta eins og að gera fjórar kvikmyndir í beit þannig að þetta var líka hressandi upp á að sjá hvar þolmörk manns liggja, svolítið eins og að hlaupa maraþon. Þegar maður vinnur svona lengi með góðu tökuliði er á ákveðnum tímapunkti eins og maður sé búinn að búa til ákveðna vél og geti haldið áfram endalaust. Sem leikstjóri kvikmynda er ég kannski í tökum fjórða eða fimmta hvert ár,“ svarar Dagur Kári.

Tökur á þáttunum stóðu yfir í hundrað daga og segir Dagur Kári undirbúning hafa farið fram á undan því og álíka langur tími í klippingu og eftirvinnslu. Að öllu samanlögðu hafi þetta verið um tvö ár. Það er ansi langur tími og Dagur Kári segist hafa verið feginn að geta farið að hugsa um eitthvað annað eftir að hans hlutverki lauk.

„Mér fannst þetta liggja mjög vel við því sem ég …
„Mér fannst þetta liggja mjög vel við því sem ég hef sérhæft mig í sem leikstjóri og handritið er frábært þannig að ég ákvað að taka þarna tvö ár út úr mínu persónulega dagatali til að koma þessu í hús,“ segir Dagur Kári. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bændur í illdeilum

–Um hvað eru þessir þættir?

„Þeir eiga að gerast einhvers staðar úti í rassgati í Norður-Noregi og aðalsagan er um tvo bændur, annars vegar norskan sauðfjárbónda og hins vegar hreindýrabónda af samískum uppruna. Þeir eiga í illdeilum sem vinda upp á sig og smitast út í allt samfélagið þannig að við kynnumst t.d. sýslumanninum og prestinum og svo er þarna aðkomukona sem er nýi kennarinn,“ svarar Dagur Kári. Þræðirnir séu nokkrir í sögunni og fylgst með örlögum nokkurra persóna. „Hryggjarstykkið eru þessar deilur bændanna.“

–Er þetta blanda af gríni og dramatík?

„Já, þetta er akkúrat það, svartur húmor og mikill húmor í þessu en líka dramatískur undirtónn.“

–Þú ert nú á heimavelli þar.

„Já, það er oft hent í mann hinu og þessu og ég segi nú yfirleitt nei af því ég sé ekki sjálfan mig í verkefnunum en þarna fannst mér eins og ég væri kominn með svarta beltið í akkúrat þessu, að blanda saman húmor og trega. Mér fannst þetta liggja mjög vel við því sem ég hef sérhæft mig í sem leikstjóri og handritið er frábært þannig að ég ákvað að taka þarna tvö ár út úr mínu persónulega dagatali til að koma þessu í hús,“ segir Dagur Kári.

Jákvæð áhrif á bransann

Dagur Kári var vel á veg kominn við að þróa kvikmynd í Danmörku þegar honum bauðst að leikstýra Utmark. Var það verkefni sett á ís á meðan, kvikmyndin Sjalú með Danicu Curcic og Mikkel Boe Følsgård í aðalhlutverkum. Dagur Kári skrifar handrit myndarinnar og leikstýrir og segist vonast til þess að geta hafið tökur snemma á næsta ári. „Í millitíðinni bendir allt til þess að ég muni leikstýra tveimur þáttum í danskri seríu í haust,“ segir hann.

Dagur Kári er spurður að því hvort ekki sé ákveðið öryggi fólgið í því að geta leikstýrt sjónvarpsþáttum milli kvikmyndaverkefna. „Jú, þetta eiginlega gjörbreytir starfsumhverfi manns því þó vel gangi líða yfirleitt alltaf þrjú, fjögur ár á milli kvikmynda og það koma tímabil þar sem maður er tekjulaus á meðan maður er að bíða eftir að næsta mynd fari í gang. En með þessari sprengingu í sjónvarpsþáttagerð getur maður einmitt stokkið til og leikstýrt nokkrum þáttum og haldið sér líka gangandi og í þjálfun. Þetta hefur haft ótrúlega jákvæð áhrif á bransann.“

Meistaraverk eða amatör-revía

Gagnrýni á Utmark hefur að langmestu leyti verið jákvæð en nokkrir neikvæðir dómar hafa þó birst sem Dagur Kári segist alveg hafa átt von á því þættirnir séu ekki „politically correct“. „Besta fyrirsögnin var „Meistaraverk“ og sú versta „Eins og langdregin amatör-revía“ þannig að það er nú bara spennandi. Það eru pínu öfgar í báðar áttir sem gerir þetta bara meira spennandi, held ég,“ segir Dagur Kári og virðist ekki taka gagnrýni nærri sér. Hann bendir á að gagnrýni sé alltaf á endanum álit einhvers og til lítils að velta sér upp úr því.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 5. maí. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson