Faðir Adele látinn 57 ára að aldri

Faðir söngkonunnar Adele er látinn.
Faðir söngkonunnar Adele er látinn. AFP

Mark Evans, faðir söngkonunnar Adele, er látinn 57 ára að aldri. Evans lést á þriðjudag eftir áralanga baráttu við ristilkrabbamein. 

Evans yfirgaf Adele og móður hennar, Penny Adkins, þegar hún var aðeins þriggja ára að aldri og hefur söngkonan verið í litlum samskiptum við hann síðan. Adele fagnaði 33 ára afmæli sínu um daginn. 

Evans, sem glímdi við alkóhólisma, sagði frá því í fjölmiðlum eftir að dóttir hans varð fræg að þau hefðu náð aftur saman. Adele neitaði þeim fullyrðingum föður síns í viðtölum í gegnum árin og sagðist ekki elska föður sinn. Hún sagði jafnframt að hún hataði hann ekki. 

Í viðtali árið 2011 viðurkenndi Evans að hann hefði ekki verið góður faðir. Hann kenndi áfenginu um. „Ég drakk tvo lítra af vodka og sjö eða átta stellur á hverjum degi. Ég drakk þannig í þrjú ár. Aðeins Guð veit hvernig ég lifði það af,“ sagði Evans. 

Page Six

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson