Ekki lengur kyngreindir flokkar

Bríet á Íslensku tónlistarverðlaununum í fyrra.
Bríet á Íslensku tónlistarverðlaununum í fyrra. Ljósmynd/Hörður Sveinsson

Aðstandendur Íslensku tónlistarverðlaunanna hafa tekið þá ákvörðun að fella út þá kyngreindu flokka sem eftir standa frá og með verðlaunahátíðinni 2022, að því  er fram kemur í tilkynningu frá þeim. Segir að því verði ekki veitt sérverðlaun fyrir söngvara og/eða söngkonur heldur flokkarnir sameinaðir og verðlaun veitt fyrir söng ársins, hvers kyns sem viðkomandi er.

Kristján Freyr, framkvæmdastjóri Íslensku tónlistarverðlaunanna, segir í tilkynningunni að þetta sé tákn um nýja tíma og að einhugur aðildarfélaga tónlistarfólks hafi verið algjör um þessa ákvörðun. „Nýtt og betra samfélag kallar eftir álíka breytingum og sýnir að við erum ekki lengur svo pólaríseruð eða bara tvívíð. Við erum alls konar, sís, trans, intersex, kynsegin; konur, karlar og kvár. Kynin eru ekki bara í steríó,“ er haft eftir honum.

„Það lítur því út fyrir að þeir söngvarar og söngkonur sem hlutu verðlaun í sínum flokkum í apríl síðastliðinn hafi verið þau síðustu að hljóta þá nafnbót. Það voru þau Högni Egilsson, Bríet Ísis Elfar, Álfheiður Erla Guðmundsdóttir og Stuart Skelton sem voru söngvarar og söngkonur ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021,“ segir í tilkynningunni og að Íslensku tónlistarverðlaunin verði veitt í mars á þessu ári. Opnað var fyrir innsendingar til verðlaunanna 1. janúar á Iston.is.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir