Sá heitasti lét loksins sjá sig með kærustunni

Parið Michael B. Jordan og fyrirsætan Lori Harvey.
Parið Michael B. Jordan og fyrirsætan Lori Harvey. AFP/Patrick T. FALLON

Leikarinn Michael B Jordan mætti loksins með kærustuna, fyrirsætuna Lori Harvey, með sér á rauða dregilinn þegar hann mætti í Óskarsverðlaunaveislu Vanity Fair. Rétt eftir að tímaritið People krýndi Jordan kynþokkafyllsta mann í heimi í nóvember 2020 var hann kominn með kærustu. 

Kærastan er fyrirsætan Lori Harvey. Stjörnuparið fagnaði fyrsta sambandsafmælinu í nóvember í fyrra. Harvey er vön sviðsljósinu þar sem faðir hennar er grínistinn Steve Har­vey. Jordan og Harvey völdu greinilega dagsetninguna vel til þess að stíga fram opinberlega en kvöldið er alla jafna stærsta kvöldið í dagatali stjarnanna í Hollywood. 

Black Panther-leikarinn var flottur í svörtum jakkafötum frá Tom Ford á meðan fyrrisætan var í einstaklega fallegum kjól frá Tony Ward. 

Michael B. Jordan og Lori Harvey voru flott saman.
Michael B. Jordan og Lori Harvey voru flott saman. AFP/Patrick T. FALLON
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir