„Stóra ástin“ hafi lamið hana ítrekað

Leikkonan Amber Heard lýsti því ofbeldi sem hún mátti þola …
Leikkonan Amber Heard lýsti því ofbeldi sem hún mátti þola af hendi Johnny Depp á meðan þau voru gift. AFP

Leikkonan Amber Heard lýsti því hvernig fyrrverandi eiginmaður hennar, leikarinn Johnny Depp, hafi ítrekað lagt hendur á hana á meðan sambandi þeirra stóð. Hún segir hann yfirleitt hafa verið drukkinn eða undir áhrifum fíkniefna þegar hann lagði hendur á hana. 

„Hann var stóra ástin í lífi mínu. En ég sá líka aðra hlið á honum. Og þessi önnur hlið var hræðileg,“ sagði Heard þegar hún bar vitni í réttarhöldunum í gær. Depp höfðaði meiðyrðamál gegn Heard vegna greinar sem hún skrifaði í Washington Post árið 2018 þar sem hún lýsti sjálfri sér sem þolanda heimilisofbeldis. Hún nafngreindi Depp aldrei. 

Þetta er í fyrsta skipti sem Heard ber vitni í málinu en réttarhöldin hófust um miðjan apríl. Depp er búinn að bera vitni og sagðist aldrei hafa lagt hendur á Heard.

Fyrsta höggið

Heard sagði frá því hvernig hún varð ástfangin af Depp þegar þau fóru í kynningarferð fyrir kvikmyndina The Rum Diary árið 2011. 

„Þegar ég var með honum fann ég, þú veist, strauma. Ég fann fyrir fiðrildum. Ég sá ekki sólina fyrir honum,“ sagði Heard. Hún segir sambandið hafa breyst árið 2012. 

Heard sagði það vera óbærilegt fyrir hana að sitja í …
Heard sagði það vera óbærilegt fyrir hana að sitja í margar vikur og þurfa að endurupplifa allt sem gekk á í hjónabandi þeirra. AFP

„Þegar hann byrjaði að drekka fyrst, þá hugsaði ég ekki mikið um það. Hann hvarf og kom til baka. Hann var öðruvísi þegar hann kom til baka,“ sagði Heard. 

Hún segir Depp hafa lamið hana í fyrsta skipti eftir að hún hló að húðflúri hans. „Hann sló mig af engri ástæðu,“ sagði Depp og komst við. 

Heard sagði hann hafa verið mjög afbrýðisaman og sakað hana ítrað um að halda framhjá honum. 

„Ásakanir, ásakanir og svo sprakk hann. Hann henti gleri í mig, velti borðum, lamdi í veggina og síðan lamdi hann í vegginn við hliðina á mér,“ sagði Heard.

Johnny Depp í réttarsalnum í gær.
Johnny Depp í réttarsalnum í gær. AFP

Leitaði að fíkniefnum „inni í henni“

Heard lýsti atviki sem hún segir að hafi átt sér stað eina helgi í maí árið 2013 þegar þau fóru í frí með vinum sínum. Sagði hún hann hafa rifið kjólinn utan af henni, rifið nærföt hennar og stungið fingrum sínum „inn í hana“. „Hann var að leita að fíkniefnunum sínum, kókaíninu sínu“.

Leikkonan sagði hann hegða sér á mismunandi hátt eftir því á hvaða fíkniefnum hann væri. 

„Ég á erfitt með að lýsa því hversu sársaukafullt þetta er. Það er óbærilegt fyrir mig að sitja hér í margar vikur og endurupplifa allt,“ sagði Heard. 

Fyrr í vikunni bar Dawn Hughes, sálfræðingur sem ráðinn var af lögmönnum Heard, vitni um það að hún væri með áfallastreituröskun vegna heimilisofbeldis. Greining hennar stangast á við greiningu sálfræðings sem lögmenn Depps réðu, en sá sálfræðingur greindi hana með tvær persónuleikaraskanir. 

Heard mun aftur bera vitni í dag.

Heard sagði Depp hafa rifið utan af henni fötin og …
Heard sagði Depp hafa rifið utan af henni fötin og leitað að fíkniefnum inni í henni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson