Herra Hnetusmjör kemur litahlaupurum í gírinn

The Color Run litahlaupið 2019.
The Color Run litahlaupið 2019. Haraldur Jónasson/Hari

Þátttakendur í litahlaupinu The Color Run eiga von á góðri skemmtun á sviðinu fyrir og eftir hlaup í Laugardalnum laugardaginn 4. júní næstkomandi. Herra Hnetusmjör mun skemmta gestum í upphituninni fyrir hlaupið með nokkrum vel völdum lögum til að koma öllum í rétta gírinn.

Rapparinn Johnny Boy hitar upp fyrir Herra Hnetusmjör með tveimur lögum. Johnny Boy er listamannsnafn Jónasar Víkings, 15 ára nýstirnis í rappsenunni á Íslandi, sem sigraði í Rímnaflæði sem er rappkeppni unga fólksins.

Eva Ruza verður sem fyrr kynnir viðburðarins og fær til liðs við sig Gústa B, samfélagsmiðlastjörnu og útvarpsmann á FM957. Saman munu þau sjá til þess að það verður ekki fjörlaus mínúta fyrir framan sviðið í upphituninni og litabombupartýinu eftir hlaup.

Eva Ruza verður á svæðinu.
Eva Ruza verður á svæðinu.

Litahlaupið verður haldið í ár eftir tveggja ára hlé og lofa aðstandendur mikilli skemmtun í Laugardalnum. Allir sem keypt höfðu miða í hlaupin sem áttu að fara fram árin 2020 og 2021 geta notað miða sína í hlaupin í ár.

Þetta verður í sjötta sinn sem litahlaupið fer fram í Reykjavík. Alltaf hefur verið uppselt á viðburðinn. Litahlaupið er fimm kílómetra löng skemmtun fyrir alla fjölskylduna, þar sem þátttakendur eru litaðir með litapúðri eftir hvern kilómetra og við endamarkið bíður þátttakenda fjölskylduskemmtun. 

Ólíkt flestum öðrum hlaupum, snýst litahlaupið ekki um að koma í mark á sem skemmstum tíma, heldur að njóta upplifunarinnar. Þátttakendur hefja hlaupið í hvítum bol en verða í öllum regnbogans litum þegar komið verður í mark.

Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes