„Það sem einkennir hátíðina í ár er hversu mörgum myndanna, sem sýndar eru á henni, er leikstýrt af konum eða nær öllum. Þetta sýnir vel hversu sterklega þessi nýja kynslóð kvenleikstjóra er að koma inn sem er mikið gleðiefni,“ segir Anna Margrét Björnsson, upplýsingafulltrúi franska sendiráðsins um Franska kvikmyndahátíð sem sett var í gær. Hún segir myndirnar allar hafa hlotið afbragðsviðtökur hjá gagnrýnendum og margar hverjar bæði verðlaun og tilnefningar. Dagskrá hátíðarinnar má finna á vef Bíós Paradísar, bioparadis.is.