Óhefðbundnar myndir af páfanum vekja athygli

Heldur óhefðbundnar myndir af Frans páfa hafa vakið mikla athygli …
Heldur óhefðbundnar myndir af Frans páfa hafa vakið mikla athygli undanfarna daga. AFP

Nýverið hafa heldur óhefðbundnar myndir af Frans páfa farið í dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem hann sést ganga um í hönnunarúlpum frá Balenciaga og Moncler.

Myndirnar eru hins vegar ekki raunverulegar ljósmyndir heldur voru þær búnar til af gervigreind. Blaðamaður Buzz Feed News hafði samband við manninn á bak við myndirnar.

Var á ofskynjunarsveppum

Pablo Xavier er 31 árs smiður frá Chicago. Hann segist hafa verið á ofskynjunarsveppum þegar hann bjó myndirnar til í síðustu viku. Hann setti myndirnar í lokaðan Facebook hóp sem heitir AI Art Universe og síðan á Reddit. 

Honum var brugðið þegar myndirnar fóru í dreifingu á netinu og segist ekki hafa skapað myndirnar af illvilja í garð páfans. „Mér fannst bara fyndið að sjá páfann í fyndnum jakka.“

Fólk rak sannarlega upp stór augu þegar það sá myndirnar, enda virtust þær afar raunverulegar. Þær hafa blekkt fjölmarga og hefur könnun sem sett var í loftið á Twitter leitt í ljós að nær helmingur notenda hélt að myndirnar væru raunverulegar. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson