Ung TikTok-stjarna lést í bílslysi

Kara Santorelli er látin aðeins 18 ára gömul.
Kara Santorelli er látin aðeins 18 ára gömul. Skjáskot/Instagram

TikTok–stjarnan Kara Santorelli er látin aðeins 18 ára aldri eftir að hafa lent í bílslysi. Dauði ungu samfélagsmiðlastjörnunnar kemur aðeins örfáum dögum eftir að hún birti færslu á miðlinum þar sem hún deildi því að hún hefði aldrei lent í árekstri. 

Atvikið átti sér stað í heimafylki hennar, Flórída, hinn 17. mars síðastliðinn. Að sögn lögreglumanna á vettvangi var ökutækið sem lenti á Santorelli að keyra niður þjóðveginn á röngum vegarhelmingi áður en það ók á hana. Sagt er að kviknað hafi í bílnum við áreksturinn og að báðir ökumenn hafi látist á vettvangi. 

Santorelli var dugleg að deila myndskeiðum á TikTok og hafði safnað að sér rúmlega 50 þúsund fylgjendum. Í einni af síðustu færslum sínum ræddi hún um hvað hún hefði verið heppin að hafa aldrei lent í árekstri.

Hún talaði beint í myndavélina á meðan hún var undir stýri í bílnum sínum og sagði: „Þegar þeir reyna að kalla mig slæman ökumann, en ég hef aldrei ekið á mann eða bíl.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes