Cooper og Hadid sögð vera að stinga saman nefjum

Er þetta nýjasta parið í Hollywood?
Er þetta nýjasta parið í Hollywood? Samsett mynd

Leikarinn Bradley Cooper og ofurfyrirsætan Gigi Hadid eru sögð vera að stinga saman nefjum þessa dagana, en þau sáust yfirgefa veitingastaðinn Via Carota á fimmtudagskvöld í New York-borg. 

Parið reyndi að láta lítið fyrir sér fara og hefur ekki gefið neitt opinberalega út um það hvort það eigi í ástarsambandi. 

Cooper skaust upp á stjörnuhimininn árið 2009 í kvikmyndinni The Hangover og hefur leikið hvert stórhlutverkið á fætur öðru síðan. Hadid er ein eftirsóttasta fyrirsæta heims um þessar mundir. 

Cooper á eina dóttur með ofurfyrirsætunni Irinu Shayk og var að hitta stjórnmálafræðinginn Huma Abedin á síðasta ári.

Hadid á einnig eina dóttur úr sambandi sínu með söngvaranum Zayn Malik, sem gerði garðinn frægan með One Direction. Rúmt ár er frá því að Hadid sást með stórleikaranum og góðvini Cooper, Leonardo DiCaprio.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það getur verið erfitt að opna augu samferðamanna sinna og svo sannarlega að hafa það á tilfinningunni að maður sé einn í heiminum. Sýndu þig verðugan að vera frjáls.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það getur verið erfitt að opna augu samferðamanna sinna og svo sannarlega að hafa það á tilfinningunni að maður sé einn í heiminum. Sýndu þig verðugan að vera frjáls.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav