Það var mikil stemning og gleði í Söngvakeppnisstúdíóinu Fossaleyni í gær þegar fyrri undanúrslit Söngvakeppni Sjónvarpsins fóru fram.
Fimm lög af þeim tíu sem keppa til sigurs voru flutt. Lögin Bíómynd með hljómsveitinni VÆB og Stingum af með Anítu Rós Þorsteinsdóttur voru kosin áfram í úrslit.
Seinni undanúrslit verða haldin næsta laugardag. Úrslitakvöldið fer síðan fram 2. mars.