Vilhjálmur Bretaprins hrósaði listrænu augu eiginkonu sinnar, Katrínar prinsessu af Wales, og færni hennar í myndvinnslu á meðan hann skreytti smákökur með skólabörnum í félagsmiðstöð í Lundúnum í gærdag. Vilhjálmur virtist vera í góðu skapi þrátt fyrir umfjöllun síðustu daga.
Vilhjálmur gerði ekki mikið úr hæfileikum sínum þegar hann ræddi við viðstadda. „Konan mín er með listræna augað,” sagði Vilhjálmur og bætti því við að börnin hans væru meira skapandi og listræn.
🗣️ 'My wife is the arty one.'
— Sky News (@SkyNews) March 14, 2024
Prince William praises the Princess of Wales' artistic skills as he decorates biscuits in West London.
Read more: https://t.co/RWl5pq6jrE pic.twitter.com/4SDjoTD9kT
Katrín og breska konungsfjölskyldan hefur verið undir smásjá fjölmiðla allt frá því að prinsessan gekkst undir kviðarholsaðgerð þann 16. janúar síðastliðinn. Ýmsar kenningar hafa sprottið upp í kjölfar þess en Katrín hefur ekki sést á opinberum vettvangi síðan fyrir aðgerðina.
Buckingham-höll ákvað að birta ljósmynd af prinsessunni sem átti að róa umræðuna um hvarf hennar úr sviðsljósinu, en umræðan jókst þegar í ljós kom að átt hafði verið við myndina. Reuters, AP, Getty og AFP afturkölluðu myndina úr kerfum sínum á mánudag og vöruðu fjölmiðla við notkun myndarinnar.
Katrín sendi frá sér afsökunarbeiðni á X.
Like many amateur photographers, I do occasionally experiment with editing. I wanted to express my apologies for any confusion the family photograph we shared yesterday caused. I hope everyone celebrating had a very happy Mother’s Day. C
— The Prince and Princess of Wales (@KensingtonRoyal) March 11, 2024