Klárið áður en ég drepst!

„Áfram með smjerið,“ segir Ozzy. Og Sharon kinkar kolli.
„Áfram með smjerið,“ segir Ozzy. Og Sharon kinkar kolli. AFP/Kevin Winter

„Þegar þeir loksins klára þessa mynd þá verð ég dauður … Mig langar til að vera fokking lifandi til að sjá hana,“ sagði önugur Ozzy Osbourne í hlaðvarpi fjölskyldu sinnar á dögunum þegar talið barst að fyrirhugaðri leikinni kvikmynd um ástarsamband hans og eiginkonunnar, Sharon. Ozzy er orðinn 75 ára og hefur undanfarin ár og misseri glímt við parkinsonssjúkdóminn.

„Það tekur óratíma að gera kvikmynd. Heila eilífð,“ bætti Sharon við en fyrst var upplýst um áformin árið 2021. Spurð hvaða leikkonu hún vildi sjá leika sig í myndinni svaraði Sharon: „Florence Pugh eða litlu stelpuna úr Game of Thrones.“

Ekki var rætt hver ætti að leika Ozzy.

Sharon vill fá ensku leikkonuna vinsælu Florence Pugh til að …
Sharon vill fá ensku leikkonuna vinsælu Florence Pugh til að leika sig í kvikmyndinni fyrirhuguðu. AFP/Frederic J. Brown

Höfundur handrits verður Lee Hall, sem skrifaði Rocketman, sem fjallaði um líf Eltons Johns, og fram hefur komið að myndin verði duglega krydduð með tónlist Black Sabbath og frá sólóferli Ozzys. Sony Pictures og Polygram Entertainment framleiða.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir