Rannsaka dauða Matthew Perry

Matthew Perry lést á heimili sínu í október.
Matthew Perry lést á heimili sínu í október. AFP

Lögeglan í Los Angeles hefur hafið rannsókn á dauða Friends-leikarans Matthew Perry.

Perry lést í október á síðasta ári vegna bráðra áhrifa ketamíns en lögregla rannsakar nú hvernig Perry hafi komst yfir efnið samkvæmt BBC.

Keta­mín er sterkt svæf­ing­ar- og deyfi­lyf sem einnig get­ur kallað fram of­skynj­an­ir og er því sömuleiðis notað sem vímu­efni. Hef­ur það einnig notið aukinna vin­sælda á síðustu árum til að vinna bug á áfeng­is­sýki og geðrænum kvillum eins og þunglyndi.

Var í ketamínmeðferð hjá lækni

Í yfirlýsingu til fjölmiðla staðfesti lögreglan í Los Angeles að rannsóknin væri unnin í samstarfi við fíkniefnalögreglu og bandaríska pósteftirlitið. Ekki er vitað hversu langt rannsóknin er komin eða hverjir hafi verið yfirheyrðir í tengslum við hana.

Eru nokkrir aðrir þættir sagðir kunna hafa átt þátt í dauða Perry svo sem drukknun, kransæðasjúkdómur og áhrif búprenorfíns sem Perry notaði gegn ópíóðafíkn.

Hafði Perry lengi glímt við áfengis- og vímuefnafíkn á fullorðinsárunum og oft leitað sér aðstoðar meðferðaraðila.

Var hann í ketamínmeðferð, undir eftirliti læknis, við kvíða og þunglyndi er hann lést. Í skýrslu réttarmeinafræðings segir þó að læknir Perry hafi ekki veitt honum ketamínmeðferð í yfir eina og hálfa viku er hann lést og því óljóst hvaðan hann hafi fengið svo mikið magn ketamíns.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Með réttum félaga getur þú myndað sterkt bandalag til að hrinda áhugamálum þínum í framkvæmd. Mundu samt að ganga hægt um gleðinnar dyr svo ekki fari allt í vitleysu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riely og Lucinda Riley
3
Eppu Nuotio
4
Sofie Sarenbrant
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Með réttum félaga getur þú myndað sterkt bandalag til að hrinda áhugamálum þínum í framkvæmd. Mundu samt að ganga hægt um gleðinnar dyr svo ekki fari allt í vitleysu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riely og Lucinda Riley
3
Eppu Nuotio
4
Sofie Sarenbrant
5
Birgitta H. Halldórsdóttir