Hálf milljón tók þátt í mótmælum

Sjálfstæð Katalónía? | 18. október 2019

Hálf milljón tók þátt í mótmælum

Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í Barcelona á Spáni í dag. Mótmælin eru þau fjölmennustu sem hafa verið frá því þau hófust á mánudag. Fang­els­is­dóm­um leiðtoga aðskilnaðarsinna sem vilja sjálf­stæði Katalón­íu­héraðs er mótmælt. Aðskilnaðarsinnar hvöttu til allsherjar mótmæla í Katalóníu í dag. 

Hálf milljón tók þátt í mótmælum

Sjálfstæð Katalónía? | 18. október 2019

Aðskilnaðarsinnar kveiktu eld í mótmælunum í dag.
Aðskilnaðarsinnar kveiktu eld í mótmælunum í dag. AFP

Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í Barcelona á Spáni í dag. Mótmælin eru þau fjölmennustu sem hafa verið frá því þau hófust á mánudag. Fang­els­is­dóm­um leiðtoga aðskilnaðarsinna sem vilja sjálf­stæði Katalón­íu­héraðs er mótmælt. Aðskilnaðarsinnar hvöttu til allsherjar mótmæla í Katalóníu í dag. 

Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í Barcelona á Spáni í dag. Mótmælin eru þau fjölmennustu sem hafa verið frá því þau hófust á mánudag. Fang­els­is­dóm­um leiðtoga aðskilnaðarsinna sem vilja sjálf­stæði Katalón­íu­héraðs er mótmælt. Aðskilnaðarsinnar hvöttu til allsherjar mótmæla í Katalóníu í dag. 

Samgöngur eru víða í lamasessi, flugi hefur verið aflýst af alþjóðaflugvellinum í borginni og  verslunum var víða lokað og eftirsóttir ferðamannastaðir borgarinnar voru tepptir af mótmælendum.  

Talið er að yfir hálf milljón manna hafi tekið þátt í mótmælunum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru þetta um 525 þúsund manns. Flestir mótmætlu friðsamlega og gengu fylktu liði um miðborg Barcelona með skilt. Ungir mótmælendur kveiktu eld og létu ófriðsamlega. Lögreglan beitti táragasi og skaut gúmmíkúlum á mótmælendur. 

Fyrstu þrír dagar mótmælanna hafa þegar kostað spænska ríkið um 1.575.000 evrur vegna skemmdarverka sem hafa verið unnin. Til að mynda hafa umferðarljós og -skilti verið eyðilögð, tré og ruslatunnur skemmdar svo dæmi séu tekin.   

Mótmælin eru þau fjölmennustu frá því á mánudaginn.
Mótmælin eru þau fjölmennustu frá því á mánudaginn. AFP
mbl.is