68 leyfi fyrir flutning hergagna

Alþingi | 4. febrúar 2022

68 leyfi fyrir flutning hergagna

Alls hafa borist 69 umsóknir um flutning hergagna með íslenskum loftförum frá því að ábyrgð á leyfisveitingum færðist til utanríkisráðuneytisins vorið 2019.  Í eitt skipti var um að ræða flutning í íslenskri lofthelgi. Allar umsóknirnar bárust frá flugrekandanum Air Atlanta.

68 leyfi fyrir flutning hergagna

Alþingi | 4. febrúar 2022

Utanríkisráðuneytið við Rauðarárstíg.
Utanríkisráðuneytið við Rauðarárstíg. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Alls hafa borist 69 umsóknir um flutning hergagna með íslenskum loftförum frá því að ábyrgð á leyfisveitingum færðist til utanríkisráðuneytisins vorið 2019.  Í eitt skipti var um að ræða flutning í íslenskri lofthelgi. Allar umsóknirnar bárust frá flugrekandanum Air Atlanta.

Alls hafa borist 69 umsóknir um flutning hergagna með íslenskum loftförum frá því að ábyrgð á leyfisveitingum færðist til utanríkisráðuneytisins vorið 2019.  Í eitt skipti var um að ræða flutning í íslenskri lofthelgi. Allar umsóknirnar bárust frá flugrekandanum Air Atlanta.

Þetta kemur fram í svari utanríkisráðherra við fyrirspurn Andrésar Inga Jónssonar, þingmanns Pírata, um vopnaflutninga.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata.
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þar kemur fram að aðeins einni umsókn um leyfi til hergagnaflutninga hafi verið hafnað, á sama tímabili, á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Ekki fengust tilgreind uppruna- og áfangastaður hergagna í hverri umsókn fyrir sig eða nánari upplýsingar um hergögnin, svo sem framleiðanda þeirra eða magn. Vísar ráðuneytið til upplýsingalaga þar sem kveðið er á um að óheimilt sé að veita almenningi aðgang að gögnum er varða mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila, sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, nema með samþykki þess sem í hlut á.

Þó kemur fram að upplýsingarnar liggi fyrir hjá ráðuneytinu og í boði sé að kynna þær fyrir utanríkismálanefd Alþingis í trúnaði.

mbl.is