Framboðslisti XD í Kópavogi samþykktur

Sveitarstjórnarkosningar | 5. apríl 2022

Framboðslisti XD í Kópavogi samþykktur

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi samþykkti í dag framboðslista vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. 

Framboðslisti XD í Kópavogi samþykktur

Sveitarstjórnarkosningar | 5. apríl 2022

Ásdís Kristjánsdóttir leiðir listann.
Ásdís Kristjánsdóttir leiðir listann. Ljósmynd/Aðsend

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi samþykkti í dag framboðslista vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. 

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi samþykkti í dag framboðslista vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. 

Ásdís Kristjánsdóttir sem sigraði í prófkjöri flokksins í mars síðastliðnum skipar efsta sætið, í öðru sæti er Hjördís Ýr Johnson og í því þriðja Andri Steinn Hilmarsson. Gengið verður til kosninga þann 13. maí næstkomandi.

Neðar á listanum taka meðal annars sæti Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra og forseti Alþingis, Unnur B. Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands og er Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri í 22. sæti.

Listinn í heild:

1. Ásdís Kristjánsdóttir, hagfræðingur

2. Hjördís Ýr Johnson, bæjarfulltrúi og framleiðslustjóri

3. Andri Steinn Hilmarsson, varabæjarfulltrúi og aðstoðarmaður þingflokks

4. Hannes Steindórsson, fasteignasali

5. Elísabet Sveinsdóttir, markaðsstjóri

6. Hanna Carla Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri

7. Sigvaldi Egill Lárusson, fjármála- og rekstrarstjóri

8. Bergur Þorri Benjamínsson, starfsmaður þingflokks 

9. Sigrún Bjarnadóttir, skólastjóri

10. Hermann Ármannsson, stuðningsfulltrúi

11. Axel Þór Eysteinsson, framkvæmdastjóri

12. Tinna Rán Sverrisdóttir, lögfræðingur

13. Rúnar Ívarsson, markaðsfulltrúi

14. Sólveig Pétursdóttir, fyrrv. dómsmálaráðherra og forseti Alþingis

15. Kristín Amy Dyer, forstjóri

16. Sveinbjörn Sveinbjörnsson, lögmaður

17. Sunna Guðmundsdóttir, forstöðumaður

18. Jón Finnbogason, útlánastjóri 

19. Unnur B. Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands

20. Gunnsteinn Sigurðsson, fyrrv. skólastjóri

21. Margrét Friðriksdóttir, forseti bæjarstjórnar

22. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri 

mbl.is