Engar verulegar áhyggjur nema krafturinn aukist

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 9. ágúst 2022

Engar verulegar áhyggjur nema krafturinn aukist

Veðurfræðingurinn Sig­urður Þ. Ragn­ars­son, bet­ur þekkt­ur sem Siggi storm­ur, telur að eldgosið í Meradölum muni ekki hafa áhrif á veðurfar í borginni.

Engar verulegar áhyggjur nema krafturinn aukist

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 9. ágúst 2022

Sigurður segir að frekar eigi að hafa áhyggjur af súru …
Sigurður segir að frekar eigi að hafa áhyggjur af súru regni en áhrifa eldgosins á veðurfar. Ljósmynd/Frikki

Veðurfræðingurinn Sig­urður Þ. Ragn­ars­son, bet­ur þekkt­ur sem Siggi storm­ur, telur að eldgosið í Meradölum muni ekki hafa áhrif á veðurfar í borginni.

Veðurfræðingurinn Sig­urður Þ. Ragn­ars­son, bet­ur þekkt­ur sem Siggi storm­ur, telur að eldgosið í Meradölum muni ekki hafa áhrif á veðurfar í borginni.

„Gastegundir sem streyma frá eldgosum drekka vissulega í sig hita úr umhverfi og sólu. Magnið þarf að vera miklu meira til þess að það hafi merkjanleg áhrif. Hins vegar getur verið staðbundið súrara regn yfir gosstöðvunum,“ segir Sigurður í samtali við mbl.is.

„Það er náttúrlega ekki gott, hvorki fyrir vatnsbúskap né mannskepnuna og ég tala nú ekki um bíla og annað. Það ryðgar allt í súru regni.“

Ekki með verulegar áhyggjur

Sigurður segir staðsetninguna á gosinu aðeins betri nú en í fyrra.

„Ef vindur myndi standa stöðugt yfir Grindavík og rigning væri í kortunum gæti maður ímyndað sér að það færi ekki vel með þök og annað á húsum. Það gæti valdið tæringu en það þarf að koma meiri kraftur í gosið til að hafa verulegar áhyggjur.“

mbl.is