Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, greindi frá því í dag að fleiri en 1.300 úkraínskir stríðsfangar hefðu verið látnir lausir úr haldi Rússa frá því að stríðið hófst í febrúar.

Selenskí greindi frá fjöldanum á Instagram-síðu sinni er hann deildi þar mynd af Úkraínumönnum sem hafa nýlega verið látnir lausir.
„Við ætlum ekki að hætta fyrr en allt fólkið okkar er komið aftur heim,“ sagði í færslu forsetans.
Andrí Jermak, aðstoðarmaður Selenskís, greindi frá því á Telegram að 50 fangar hefðu verið látnir lausir nýlega. Meðal þeirra voru menn sem börðust í Asovstal-verksmiðjunni í Maríupol, Dónetsk, Lúhansk og Saporisjía.