Fagna því að hafa fangað Steina

Fólkið í sjávarútvegi | 22. ágúst 2023

Fagna því að hafa fangað Steina

Það virðist ekki vanta vinnustaðagrínið hjá starfsfólkinu hjá Stálorku. Í tilefni þess að Aðalsteinn Ómarsson hefur hafið störf sem verkstjóri stýrivélaþjónustu fyrirtækisins var send út tilkynning undir fyrirsögninni „Stálorka fangar Steina“.

Fagna því að hafa fangað Steina

Fólkið í sjávarútvegi | 22. ágúst 2023

Tölvugerð mynd af Aðalsteini Ómarssyni í fangabúningi fylgdi tilkynningu um …
Tölvugerð mynd af Aðalsteini Ómarssyni í fangabúningi fylgdi tilkynningu um nýráðningu. Mynd/Stálorka

Það virðist ekki vanta vinnustaðagrínið hjá starfsfólkinu hjá Stálorku. Í tilefni þess að Aðalsteinn Ómarsson hefur hafið störf sem verkstjóri stýrivélaþjónustu fyrirtækisins var send út tilkynning undir fyrirsögninni „Stálorka fangar Steina“.

Það virðist ekki vanta vinnustaðagrínið hjá starfsfólkinu hjá Stálorku. Í tilefni þess að Aðalsteinn Ómarsson hefur hafið störf sem verkstjóri stýrivélaþjónustu fyrirtækisins var send út tilkynning undir fyrirsögninni „Stálorka fangar Steina“.

Það var ekki látið þar við sitja heldur fylgir tilkynningunni tölvugerð mynd af Aðalsteini í fangabúningi haldandi á merki Stálorku.

Gunnar Óli Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stálorku, og Aðalsteinn Ómarsson nýr verkstjóri …
Gunnar Óli Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stálorku, og Aðalsteinn Ómarsson nýr verkstjóri í stýrifélaþjónustu félagsins. Ljósmynd/Stálorka

Fram kemur í tilkynningunni að Aðalsteinn mun vinna að því að byggja upp renni- og fræsiverkstæði Stálorku. Fyrirtækið er vel þekkt innan sjávarútvegs og hefur meðal annars sinnt viðhaldi og breytingum á bátum og skipum og í seinni tíð einnig unnið að viðhaldi og breytingum á búnaði sem tengist plastbátaútgerð.

„Steini er hokinn af reynslu. Hann starfaði hjá Vélaverkstæði Jóhanns Ólafs sem rennismiður og verkstjóri í 25 ár og svo kennari/sviðsstjóri hjá Borgarholtsskóla í 18 ár,“ segir í tilkynningunni sem Stálorka birti á Facebook-síðu sinni.

mbl.is