Met slegið í rafmagnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu

Orkuskipti | 19. janúar 2024

Met slegið í rafmagnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu

Í vikunni mældist mesta rafmagnsnotkun í dreifikerfi Veitna frá upphafi.

Met slegið í rafmagnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu

Orkuskipti | 19. janúar 2024

Veitur segja að stór hluti skýringarinnar á aukinni rafmagnsdreifingu eru …
Veitur segja að stór hluti skýringarinnar á aukinni rafmagnsdreifingu eru orkuskiptin en einnig fólksfjölgun, meiri umsvif í samfélaginu og mikill ferðamannastraumur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í vikunni mældist mesta rafmagnsnotkun í dreifikerfi Veitna frá upphafi.

Í vikunni mældist mesta rafmagnsnotkun í dreifikerfi Veitna frá upphafi.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Veitna, sem dreifa rafmagni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að afltoppurinn hafi náð 215,3 megavöttum. Þá er miðað við meðalálag einnar klukkustundar.

Fyrra met upp á 212,9 megavött hafði staðið óhaggað frá desembermánuði 2008.

Fyrra met hefur staðið óhaggað frá árinu 2008.
Fyrra met hefur staðið óhaggað frá árinu 2008. Kort/Veitur

Notkun dróst saman eftir hrun og faraldur

Rafmagnsnotkun dróst saman eftir bankahrunið 2008 og aftur eftir kórónuveirufaraldurinn. Hún nær almennt hámarki þegar saman fara mikil umsvif í samfélaginu, skammdegi og kuldi, segir í tilkynningunni. 

Annað skeið samdráttar í raforkunotkun hófst í nóvember 2018 og í gegnum byrjun heimsfaraldurs allt þar til á vormánuðum 2021 þegar varð verulegur viðsnúningur og raforkunotkun tók að aukast hratt fram til dagsins í dag. 

Stór hluti skýringarinnar á aukinni rafmagnsdreifingu eru orkuskiptin en einnig fólksfjölgun, meiri umsvif í samfélaginu og mikill ferðamannastraumur.  

mbl.is