Fossvogsbrú boðin út í vor og sumar

Borgarlínan | 1. febrúar 2024

Fossvogsbrú boðin út í vor og sumar

Undirbúningur fyrir útboð á Fossvogsbrú er langt á veg kominn en tvö útboð eru í undirbúningi, annars vegar fyrir fyllingar og hins vegar fyrir smíði brúarinnar.

Fossvogsbrú boðin út í vor og sumar

Borgarlínan | 1. febrúar 2024

Tölvumynd/Reykjavíkurborg

Undirbúningur fyrir útboð á Fossvogsbrú er langt á veg kominn en tvö útboð eru í undirbúningi, annars vegar fyrir fyllingar og hins vegar fyrir smíði brúarinnar.

Undirbúningur fyrir útboð á Fossvogsbrú er langt á veg kominn en tvö útboð eru í undirbúningi, annars vegar fyrir fyllingar og hins vegar fyrir smíði brúarinnar.

Brúin, sem hefur fengið nafnið Alda, var til kynningar hjá umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar í morgun.

Alda er ætluð gangandi og hjólandi vegfarendum, ásamt því að vera lykillinn að leið borgarlínunnar yfir Fossvog. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Tölvumynd/Reykjavíkurborg

270 metra löng

Áætlað er að fyllingar verði boðnar út með vorinu og verða fyllingar í Skerjafirði hluti af því útboði. 

Útboð á smíði brúarinnar og landmótun er þá fyrirhugað um mitt sumar. Gert er ráð fyrir 900 tonnum af stáli í yfirbyggingu brúarinnar sem verður í fimm höfum með steyptu brúargólfi. Gert er ráð fyrir að stórar forsmíðaðar einingar verði notaðar í stöpla og yfirbyggingu. Brúin verður 270 m að lengd.

Taka þarf sérstakt tillit til starfsemi Reykjavíkurflugvallar í báðum útboðum og þau áhrif sem flugumferð hefur á framkvæmdir við fyllingar og byggingu brúarinnar.

Tölvumynd/Reykjavíkurborg

Hluti af Samgöngusáttmála

Áætlað er að vinna við landfyllingar hefjist í sumar og að byrjað verði á Kársnesi. Í byrjun næsta árs er svo áætlað að hefja vinnu við brúargerðina sjálfa sem og landfyllingar Reykjavíkurmegin. Fyrirhugað er að hefja vinnu við landfyllingar í Skerjafirði árið 2026.

Hönnun Öldu hefur verið frá árinu 2022 unnin af verkfræðistofunni EFLU fyrir borgarlínuna í samstarfi við Verkefnastofu borgarlínunnar, Vegagerðina, Reykjavíkurborg og Kópavogsbæ.

Fossvogsbrú er hluti af verkefnum sem heyra undir Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem gerður var á milli ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu árið 2019.

Áætlaður kostnaður við brúna eru 6,7 milljarðar króna. Áætlaður kostnaður við landmótun og yfirborðsfrágang er 2,1 milljarður króna. Áætluð verklok eru á árinu 2027.

Tölvumynd/Reykjavíkurborg

Breytir útivistarmöguleikum

Í tilkynningu borgarinnar segir að með borgarlínunni verði til nýtt almenningssamgöngukerfi sem bindi borgina og nágrannasveitarfélög betur saman, með betri lífsgæðum og einfaldara lífi fyrir borgarbúa.

Tölvumynd/Reykjavíkurborg

„Með henni styrkjum við innviði, gerum góða borg ennþá betri og tökum nauðsynleg skref í loftslagsmálum og í átt að betri lýðheilsu.

Auk þess að vera mikilvæg samgöngutenging breyti brúin útivistarmöguleikum á svæðinu því göngustígurinn austan á brúnni bindi saman fimm kílómetra göngu- og hlaupaleið um Fossvoginn.

Þaðan sé fallegt útsýni yfir fjölbreytt útivistarsvæði og strandlengju Fossvogs. Af áningarstöðum við göngustíginn á brúnni sé einnig ágætt útsýni til vesturs út Skerjafjörð.

Borgarlínan á vef Reykjavíkurborgar
Tölvumynd/Reykjavíkurborg
Tölvumynd/Reykjavíkurborg
mbl.is