Nýja Fossvogsbrúin gæti flautað

Nýja brúin á að liggja frá Nauthólsvík yfir á Kársnes …
Nýja brúin á að liggja frá Nauthólsvík yfir á Kársnes í Kópavogi. Tölvumynd/Efla og BEAM

Að ýmsu þarf að huga við undirbúning og framkvæmdir við nýja Fossvogsbrú. Meðal þess sem taka þarf tillit til við hönnun brúarinnar eru hljóðáhrif af völdum vinds sem geta haft áhrif á líf fólks í nágrenni brúarinnar.

Hætt er við að klæðning geti valdi flautuáhrifum í ákveðnum vindáttum ef vindur er mikill. Með öðrum orðum, að brúin flauti. Þetta kemur fram í bókun heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 3. október vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi vegna brúarinnar.

Staðbundin mengun á svæðinu

„Miðað við núverandi deiliskipulag um leyfilega umferð á brú er ólíklegt að hljóðvist frá umferð verði vandamál í nærliggjandi byggð. Við deilihönnun brúar þarf þó að huga að mögulegum hljóðáhrifum af brú vegna vinds sem blæs í gegnum hana. Þekkt er að klæðningar á brúm geta valdið flautuáhrifum í ákveðnum vindáttum við ákveðinn vindstyrk,“ segir í bókun nefndarinnar.

Fleira þarf að hafa í huga við þessa stóru framkvæmd, að mati nefndarinnar. „Heilbrigðisnefnd vekur athygli á að það hefur orðið vart við staðbundna mengun á uppfyllingu á skipulagssvæði brúar yfir Fossvog. HEF vill leggja áherslu á að við uppgröft á svæðinu skal fjarlægja malbik og annað sýnilegt rusl og sorp sem kemur upp og farga því á viðeigandi hátt og gera grein fyrir því gagnvart heilbrigðiseftirliti. Gera þarf heilbrigðiseftirliti viðvart ef komið er niður á slíkt efni við uppgröftinn.“

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert