Þórkatla hefur kaup eigna í Grindavík í vikunni

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 9. apríl 2024

Þórkatla hefur kaup eigna í Grindavík í vikunni

Fasteignafélagið Þórkatla mun hefja kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík í þessari viku. Félaginu hafa þegar borist 644 umsóknir. 

Þórkatla hefur kaup eigna í Grindavík í vikunni

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 9. apríl 2024

Þórkatla hefur kaup fasteigna í Grindavík í vikunni.
Þórkatla hefur kaup fasteigna í Grindavík í vikunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fasteignafélagið Þórkatla mun hefja kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík í þessari viku. Félaginu hafa þegar borist 644 umsóknir. 

Fasteignafélagið Þórkatla mun hefja kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík í þessari viku. Félaginu hafa þegar borist 644 umsóknir. 

Markmið félagsins er að klára afgreiðslu þorra þeirra umsókna sem þegar hafa borist með kaupsamningum í þessum mánuði. Enn er þó ekki hægt að tímasetja kaup einstakra eigna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Þar segir jafnframt að hluti umsóknanna muni þarfnast sérstakrar skoðunar og því muni afgreiðsla þeirra taka lengri tíma. Hægt verður að sækja um að selja Þórkötlu eignir út þetta ár.

Frábrugðið hefðbundnum fasteignaviðskiptum

Verkefnið í heild sinni er frábrugðið hefðbundnum fasteignaviðskiptum að því leyti að það hefur kallað á gerð samkomulags um eftirgjöf á sjálfsskuldarábyrgð lántaka við 18 lánveitendur, sem er forsenda fyrir kaupum félagsins, segir í tilkynningunni. 

Í ljósi umfangsins hefur frá upphafi verið miðað við að kaupin fari fram í stafrænu ferli þ.m.t. undirritun og þinglýsing kaupsamninga. Í heildina er um að ræða tugmilljarða fjárfestingu sem Þórkatla fasteignafélag annast fyrir hönd stjórnvalda.

Þetta mikla umfang hefur kallað á talsverðan undirbúning og þróun verkferla við frágang kauptilboða, þinglýsingar og útborganir til seljenda, svo dæmi séu tekin, að því er fram kemur í tilkynningunni. 

Áhersla á að vinna verkefnið hratt og draga úr óvissu 

„Við leggjum áherslu á að vinna þetta hratt til draga úr óvissu þeirra sem eiga fasteignir í bænum og þurfa að finna sér annað framtíðarhúsnæði. Þá leggjum við áherslu á að eiga samstarf um mögulega leigu og eftir atvikum afnot eða aðgengi að húsnæðinu eftir að kaupin ganga í gegn.

Við viljum afgreiða öll mál eins skjótt og kostur er og munum bregðast við öllum þeim mörgu fyrirspurnum og tölvupóstum sem okkur hafa borist,“ er haft eftir Erni Viðari Skúlasyni, framkvæmdastjóra Þórkötlu.

mbl.is