Fyrstu kaup Þórkötlu í Grindavík

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 12. apríl 2024

Fyrstu kaup Þórkötlu í Grindavík

Fasteignafélagið Þórkatla gekk í dag frá fyrstu kaupsamningunum um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík. Viðkomandi fasteignareigendur í bænum munu fá greitt út í næstu viku 95% af kaupverði eigna þeirra.

Fyrstu kaup Þórkötlu í Grindavík

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 12. apríl 2024

675 umsóknir um uppkaup á húsnæði hafa borist Þórkötlu og …
675 umsóknir um uppkaup á húsnæði hafa borist Þórkötlu og áfram er hægt að sækja um slíkt út árið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fasteignafélagið Þórkatla gekk í dag frá fyrstu kaupsamningunum um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík. Viðkomandi fasteignareigendur í bænum munu fá greitt út í næstu viku 95% af kaupverði eigna þeirra.

Fasteignafélagið Þórkatla gekk í dag frá fyrstu kaupsamningunum um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík. Viðkomandi fasteignareigendur í bænum munu fá greitt út í næstu viku 95% af kaupverði eigna þeirra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórkötlu.

Kaupin fór fram með rafrænum hætti í gegnum island.is.

„Ferlið sem hefur verið í þróun að undanförnu hjá island.is felur í sér rafrænan kaupsamning, rafrænar undirskriftir og í fyrsta skipti á Íslandi rafræna þinglýsingu kaupsamninga í fasteignaviðskiptum.“

675 umsóknir borist

675 umsóknir um uppkaup á húsnæði hafa borist Þórkötlu og áfram er hægt að sækja um slíkt út árið.

„Hluti umsóknanna mun þarfnast sérstakrar skoðunar og mun afgreiðsla þeirra taka aðeins lengri tíma.“

Þá kemur fram að markmið félagsins sé að klára afgreiðslu þorra þeirra umsókna sem þegar hafa borist í þessum mánuði.

„Við erum mjög ánægð með að vera komin á þennan stað að vera búin að hefja kaup fasteigna í Grindavík. Við munum senda fólki tilkynningu þegar ákvörðun um kaup á þeirra eign liggur fyrir og strax í kjölfar rafrænnar undirritunar fer samningurinn svo í rafræna þinglýsingu. Við greiðum út 95% kaupverðs nokkrum dögum síðar og restina við undirritun afsals,“ er haft eftir Erni Viðari Skúlasyni, framkvæmdastjóri Þórkötlu fasteignafélags.

mbl.is