Grindavíkurvegur opinn fyrir íbúa og viðbragðsaðila

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 12. apríl 2024

Grindavíkurvegur, frá Reykjanesbraut að Grindavík, er nú opinn fyrir umferð. Opnunin gildir aðeins fyrir Grindvíkinga, viðbragðsaðila og starfsfólk fyrirtækja í Grindavík og við Svartsengi. 

Grindavíkurvegur.
Grindavíkurvegur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Grindavíkurvegur, frá Reykjanesbraut að Grindavík, er nú opinn fyrir umferð. Opnunin gildir aðeins fyrir Grindvíkinga, viðbragðsaðila og starfsfólk fyrirtækja í Grindavík og við Svartsengi. 

Grindavíkurvegur, frá Reykjanesbraut að Grindavík, er nú opinn fyrir umferð. Opnunin gildir aðeins fyrir Grindvíkinga, viðbragðsaðila og starfsfólk fyrirtækja í Grindavík og við Svartsengi. 

Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar en þar segir að búið sé að leggja nýja vegkafla yfir hraunið sem rann yfir Grindavíkurveg í síðustu þremur eldgosum. Hvort tveggja við vegamótin við Bláalónsveg og sunnar þar sem hraun rann yfir Grindavíkurveg í eldgosinu í janúar.

Lokunarpóstar færðir

Þar hefur verið gerður sveigur á veginn til að leiða umferðina inn til Grindavíkur á milli varnargarða. Hönnunin er þannig að ekki þarf af fylla upp í það bil á varnargarðakerfinu komi til þess að hraun renni á þessu svæði.

Lokunarpóstur hefur verið færður við afleggjarann að HS Orku í Svartsengi og hægt er að aka óhindrað að Bláa lóninu. Þá hefur lokunarpóstur á Suðurstrandarvegi verið færður að P-1 bílastæði við Festarfjall.

mbl.is