Færa smábátasjómönnum öryggisapp að kostnaðarlausu

Öryggi sjófarenda | 1. maí 2024

Færa smábátasjómönnum öryggisapp að kostnaðarlausu

Nýsköpunarfyrirtækið Alda öryggi býður nú íslenskum smábátasjómönnum sérhannað öryggisstjórnunarkerfi fyrir smábáta endurgjaldslaust. Um er að ræða lausn sem nútímavæðir, auðveldar og einfaldar allt utanumhald öryggismála hjá smábátasjómönnum á stafrænan máta.

Færa smábátasjómönnum öryggisapp að kostnaðarlausu

Öryggi sjófarenda | 1. maí 2024

Smáforritið Aggan er öryggisstjórnunarkerfi sem smábátasjómenn geta nálgast endurgjaldslaust.
Smáforritið Aggan er öryggisstjórnunarkerfi sem smábátasjómenn geta nálgast endurgjaldslaust. Samsett mynd

Nýsköpunarfyrirtækið Alda öryggi býður nú íslenskum smábátasjómönnum sérhannað öryggisstjórnunarkerfi fyrir smábáta endurgjaldslaust. Um er að ræða lausn sem nútímavæðir, auðveldar og einfaldar allt utanumhald öryggismála hjá smábátasjómönnum á stafrænan máta.

Nýsköpunarfyrirtækið Alda öryggi býður nú íslenskum smábátasjómönnum sérhannað öryggisstjórnunarkerfi fyrir smábáta endurgjaldslaust. Um er að ræða lausn sem nútímavæðir, auðveldar og einfaldar allt utanumhald öryggismála hjá smábátasjómönnum á stafrænan máta.

Smáforritið nefnist Aggan og hefur þróun hennar verið í náinni samvinnu við Siglingaráð, Landssamband smábátaeiganda og Samgöngustofu í tæpt ár. Smábátasjómenn geta nálgast forritið á heimasíðu Öggunar.

„Það er trú okkar hjá Öldunni að með Öggunni séum við að nútímavæða og færa öryggismálin nær smábátasjómönnum sem mun leiða til aukinnar öryggisvitundar á meðal þeirra og stuðla að öruggari sjósókn,“ segir Gunnar Rúnar Ólafsson, þróunarstjóri hjá Öldu Öryggi.

Skoðanir og áhættumat

Í Öggunni getur sjómaðurinn framkvæmt eigin skoðanir á bátnum sínum, gert einfalt áhættumat, skoðað ýmis konar öryggisfræðslu og skráð atvik í ATVIK-sjómenn. Markmiðið hefur verið að skila forriti sem er einfalt í notkun og gefur sjómönnum aðgengi að öllum upplýsingum er varðar öryggismál á einum stað.

„Agga fæst frítt af því að viljum ná til allra smábátasjómanna og fá þá í samvinnu við okkur um að þróa öryggisstjórnunarkerfi fyrir smábáta sem verður fyrirmynd á heimsvísu. Það er sýn okkar í Öldunni að Ísland eigi að vera kísildalur í öryggismálum sjómanna,“ segir Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Öldunnar.

Smáforrtið er sérhannað fyrri smábaáta og er hægt að nota …
Smáforrtið er sérhannað fyrri smábaáta og er hægt að nota í snjallsíma. Skjáskot/Alda öryggi
mbl.is