Auga Lundúna að komast í rétta stöðu

AP

Auga Lundúna, eins og hið risavaxna Parísarhjól er kallað, er um það bil að komast á réttan stað á suðurbakka árinnar Thames. Hér má sjá hversu langt var komið með að reisa það í morgun en þá var verið að undirbúa að koma því í rétta stöðu. Hjólið verður tekið í notkun fyrir almenning á næsta ári og mun útsýnið úr því yfir borgina verða stórfenglegt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert