Klappstýra látin í vörulyftu

Brooke Baures.
Brooke Baures.

Lögreglan í Wisconsin í Bandaríkjunum rannsakar dauða klappstýru en lík hennar fannst í lítilli vörulyftu á veitingastað.

Stúlkan hét Brooke Baures og var 21. Lík hennar fannst í lyftunni, sem er sögð mjög lítil, á veitingastaðnum WingDam Saloon and Grill í bænum Fountain.

Lögreglan segir engin augljós ummerki um að dauða hennar hafi borið að með saknæmum hætti og er því hugsanlegt að um hörmulegt slys hafi verið að ræða.

Í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar segir að vörulyftan sé notuð til að flytja mat milli hæða á veitingastaðnum. 

Stúlkan var í námi við Winona State-háskólann í Minnesota. Hún var mjög fær fimleikakona, segir yfirmaður íþróttadeildar skólans. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert