Fundinn sekur um fjöldamorð

Svo gæti farið að James Holmes hljóti dauðarefsingu.
Svo gæti farið að James Holmes hljóti dauðarefsingu. AFP

James Holmes hefur verið fundinn sekur um að hafa myrt 12 manns í kvikmyndahúsi í Denver í Colorado þann 20. júlí 2012. Kviðdómur í borginni komst að þeirri niðurstöðu í dag og á hann nú yfir höfði sér dauðarefsingu þegar refsing yfir honum verður ákvörðuð á næstunni.

Holmes réðst inn á frumsýningu á Batman-kvikmynd klæddur eins og „Jókerinn.“ Hann beitti táragasi og hóf að skjóta fólk í salnum. Þegar árásin var yfirstaðin voru 12 manns látnir. 

Sjá frétt mbl.is: Fjöldamorðinginn ber ekki vitni

Í réttarhöldunum hélt hann fram sakleysi sínu. Hann bauðst hins vegar til þess að lýsa yfir sekt sinni ef hann fengi loforð um að hann fengi ekki dauðarefsingu. Ákæruvaldið í málinu féllst ekki á það tilboð hans. „Fyrir Holmes er dauðarefsing eina réttlætið,“ sagði saksóknarinn í réttarhöldunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert