Ógnaði áhöfn með penna

Vélinni var lent í Henan-héraði og þar var maðurinn handtekinn.
Vélinni var lent í Henan-héraði og þar var maðurinn handtekinn. AFP

Kínverskur karlmaður var handtekinn eftir að hafa ógnað áhöfn flugvélar með penna á sunnudag. Átti atvikið sér stað um borð í vél Air China sem var á leið til Peking frá Changsha. Vélinni var hins vegar lent í Henan-héraði vegna uppákomunnar.

Kínversk yfirvöld segja manninn 41 árs gamlan og að hann glími við geðræn veikindi. Á myndum sem birtar hafa verið á samfélagsmiðlum má sjá manninn halda einum úr áhöfninni og bera penna upp að hálsi hans. Engan sakaði þó.

Lögreglan handtók manninn er vélin lenti í Hunan en honum hefur nú verið sleppt úr haldi, að því er fram kemur í frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert