Ferðir ísjakans á 30 sekúndum

Ísjakinn hefur færst 400-600 metra í norðurátt síðan þessi mynd …
Ísjakinn hefur færst 400-600 metra í norðurátt síðan þessi mynd var tekin um helgina. AFP

Hinn risavaxni borgarísjaki sem lónar fyrir utan smáþorpið Innaarsuit á vesturströnd Grænlands hefur fangað athygli heimsbyggðarinnar. Nú hefur grænlenska ríkissjónvarpið birt myndband sem sýnir ferðir jakans á laugardag en þar sem búið er að hraða upptökunni er myndbandið aðeins um hálf mínúta að lengd.

Um helgina færðist borgarísjakinn, sem lónað hefur skammt frá þorpinu, um 500-600 metra til norðurs vegna mikils vinds og hástreymis. 

Óttast er að stórir jakar muni brotna frá borgarísjakanum og valda flóðbylgju. Í gær var hættusvæðið sem skilgreint hafði verið við strönd þorpsins minnkað og flestir íbúarnir gátu snúið aftur til síns heima. Enn er þó bannað að vera allra næst ströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert