Vill taka byssur af fólki fullu af hatri

Bill Peduto.
Bill Peduto. AFP

Borgarstjórinn í Pittsburgh í Bandaríkjunum kallaði eftir því í dag að byssur yrðu teknar frá mögulegum hatursglæpamönnum. Ummæli hans koma í kjölfarið á því að ellefu létust í árás í bænahúsi gyðinga í borginni í gær.

„Ég held að við þurfum að skoða það hvernig við tökum byssur úr höndunum á þeim sem gætu sýnt hatur sitt með þessum hætti,“ sagði Bill Peduto borgarstjóri á blaðamannafundi.

Robert Bowers hefur ákærður fyr­ir ell­efu morð og 18 önn­ur brot, meðal ann­ars hat­urs­glæpi vegna árásarinnar í gær. Hann gæti átt yfir höfði sér dauðarefsingu.

Hóf Bowers skot­hríð og hrópaði ókvæðisorð um gyðinga meðan á árás­inni stóð. Hafa miðlar á svæðinu greint frá því að vitni hafi heyrt hann öskra að all­ir gyðing­ar skyldu deyja þegar hann gekk inn í bæna­húsið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert