Kona í dái ól barn

mbl.is/Hjörtur

Lögreglan í Arizona-ríki í Bandaríkjunum rannsakar nú mál þar sem grunur er um kynferðisbrot gegn konu sem verið hefur í dái í rúman áratug.

Fram kemur á fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph að konan hafi verið í sólarhringsumönnun á hjúkrunarheimili í borginni Phoenix.

Upp komst um málið þegar í ljós kom að konan var barnshafandi og komin að því að eiga barnið að sögn heimildarmanns. Barnið er sagt heilbrigt.

Haft er eftir talsmanni Dougs Ducey, ríkisstjóra Arizona, að þegar hafi verið gripið til aðgerða til þess að tryggja öryggi sjúklinga á hjúkrunarheimilum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert